04janúar

Valur hugsar aftur og einhvers stađar drepur Guđ lítinn krúttlegan kettling



Lífeðlisfræðitíminn í dag var frábær eins og yfirleitt, sérstaklega í 10. kafla, þar sem við fjöllum um æxlun manna. Það klikkar ekki að Ásta, kennari okkar, kemur með fjöldamörg góð ráð, viðvaranir og viskuperlur í hverjum tíma. Hún dáðist einnig að því hversu ótrúlegt það sé að við getum yfirleitt vaxið upp og orðið eins og við erum í dag, það er svo margt sem getur farið úrskeiðis. Ef ein einasta fruma skiptir sér óeðlilega eftir frjóvgun og áður en eggið festir sig við leg konunnar er því eytt svo miskunnarlaust að konan tekur ekki einu sinni eftir því að hún bar í kviðnum sínum vísi að nýju lífi og nýrri sögu.

Þá laust í huga mér hugmynd sem var svo skelfileg að ég hika við að skrifa hana hér. Hvað ef þetta gerðist við frelsarann? Hvað ef Jesú Kristur átti að fæðast á ný árið 2000, nema hvað að hann (fósturlést?)? Svo hefur Guð bara ákveðið "Nú jæja, nenni ekki að standa í þessu aftur, þeir verða bara að spjara sig." Svo átti þessi annar Kristur að deyja fyrir einhverja aðra erfðasynd sem við berum öll, nema hvað að hann varð aldrei til og gat því ekki dáið. Svo kemur dómsdagurinn öllum að óvörum einn mánudaginn og allir fara til helvítis útaf einhverju tækniatriði. Hræðileg tilhugsun.

Nú jæja, ekki eins og ég bjóst við því að komast inn í himnaríki, letihaugurinn, guðleysinginn og -lastarinn, átvaglið og bræðisdjöfullinn.

En svo að ég skrifi um eitthvað algerlega ótengt þessu, þá fór ég að pæla eftir að hafa sér mynd á huga.is, hversu mikill aulaskapur það er að hafa þessar "Piracy. It's a crime" auglýsingar í byrjuninni á löglegum
 DVD-myndum. Þetta er svona eins og ég mundi mæta á big-band-æfingu eins og ég geri oftast ásamt einhverjum sjö öðrum og við mundum öll verða húðskömmuð fyrir lélega mætingu hinna tíu meðlimina. Vel gert.

04. janúar 2008 klukkan 13:36
Valur
3 athugasemdir
23nóvember

Awesome



FVA gáfu Morfís-keppnina. Ég er svo hamingjusamur. Núna fæ ég tíma til þess að læra fyrir stærðfræðiprófið á mánudaginn. Jei.
23. nóvember 2007 klukkan 18:38
Valur
3 athugasemdir
30október

Ástţrungiđ kynlíf vs. Hamslausu ofbeldi

Ég rakst á mjög athyglisverða grein í Mogganum um daginn. Ég man ekki eftir hvern, hvort þetta hafi jafnvel verið í Lesbókinni eða barasta í Fréttablaðinu, en allavega fékk hún mig til að hugsa. Hugsa um viðmið(eða hvað sem það kallast. Pála, þú mátt leiðrétta mig ef ég er að nota hugtökin vitlaust) gagnvart ritskoðun á efni sem inniheldur kynlíf og efni sem inniheldur ofbeldi. Greinahöfundur bar saman annars vegar setninguna:

"Hann klauf menn í herðar niður"


Þetta vekur takmarkaðar tilfinningar hjá okkur, er það ekki? Hljómar meira að segja svolítið hetjulegt. Þá segir greinahöfundur okkur að pæla nánar í þessu. Sjáið þetta fyrir ykkur. Ímyndið ykkur að þið séuð sá sem er klofinn í herðar niður. Finnið hvernig miskunnarlaust stál sverðsins sker í gegnum klæði og hold, brýtur viðbeinið í tvennt og heldur niður
gegnum líkama þinn, sker í sundur öndunarfæri þín og blóð úðast út um allt og fyllir vit þín og skyndilega rennur upp fyrir þér, er kalt Íslandsloftið lekur um staði innvortis þér sem ekkert loft á að vera , að þú ert að deyja. Þú munt aldrei aftur sjá ástvini þína eða slappa af í hlýju heimili. Allt er búið.

Þetta hljómar ekki eins vel lengur, er það? Það er samt allt í lagi að segja þessa setningu nánast hvar sem er. Aldurstakmarkið er kannski svona... 10 ára. Pælum nú í annarri setningu sem greinahöfundur setti fram:

"Hann setti typpið sitt inn í píkuna hennar"

Bloggið mitt er núna bannað innan sextán ára. Allir undir þeim aldri verða að loka þessum glugga áður en foreldrar þeirra koma auga á þetta. Þegar flest fólk les þessa setningu hugsar það "vó, þetta er ljót setning, má þetta?" Það verður gjarnan vandræðanlegt og finnist eins og það hafi gert eitthvað af sér.

En pælið í þessu: Hvað er svona ljótt við þetta? Gefum okkur að þetta sé með samþykki beggja aðila(eðlilega) og þá sjáið þið hvað þetta er fallegur hlutur. Þetta gæti verið, eins og greinarhöfundur segir, eitthvert hamingjusamasta augnablik sem þetta par á eftir að upplifa. Hvar er illskan í þessari setningu?

Það er alveg stórundarlegt að það er alveg leyfilegt að eiga heila bókahillu af bókum sem fjalla um stríð, og upphefja þau jafnvel, og það er allt í lagi, hver sem er mætti fara þangað. En að eiga bókahillu af bókum sem fjalla á opinskáan máta um kynlíf þykir skammarlegt.

Berið saman Transformers og 9 Songs.

Transformers: Byrjar á því að bandarískri herstöð er slaktað af utanaðkomandi hamskiptingaróbóta. Endar á því að utanaðkomandi hamskiptingaróbótar kljást í fellibyli af hamslausu ofbeldi og eyðileggingar í miðju þéttbýli með litlu tilliti til viðstaddra óbreyttra borgara og eigendur þeirra húsa sem eru lögð í rúst. Fjölmargir hermenn tapa einnig lífinu með ýmsum hætti, eins og t.d. rekinn í gegn af sporðdrekaróbóta. Aldurstakmark: 13 ára(imdb. Mig minnir að það sé svipað hér)


9 Songs: Mynd sem fjallar um par sem hittist á rokktónleikum og sefur saman. Kynlífsatriðin eru opinská og sýna allt sem er að gerast. Enginn deyr á skjánum. Aldurstakmark: Aðeins fyrir fullorðna. Á bókasafninu er þessi mynd með stórum, rauðum viðvörunarmiðum um að þessi mynd innihaldi gróf kynlífsatriði.

Ég spyr: Eyðileggst fólk virkilega ef það sér kynlíf í sjónvarpi þegar það er ungt? Það munu allir stunda kynlíf á einhverjum tímapunkti(nema örfáir, sem eru þunglyndir einmitt út af þessu, eða þá munkar) og þá mun ekki myndavélin snúa sér frá öllu því sem er í rauninni að gerast og horfa frekar út um gluggan á stjörnubjartan himininn eða eitthvað kerti út í horni. Og nei, sængin mun ekki hylja neitt því hún er ekki til staðar í eðlilegu kynlífi.

Nú segja sumir að það sé hættulegt fyrir börn að sjá svona því þau geta fengið ranghugmyndir. Og það eru ekki ranghugmyndir að það koma risastór þungvopnuð hamskiptingavélmenni frá geimnum að finna einhvern kubb? Eða að það sé til heimur þar sem menn lifa í samlífi með álfum og dvergum og þurfa að fleygja ákveðnum galdrahring í ákveðið eldfjall? Eða að sumt fólk er með ofurkrafta og geta flogið/verið ósýnilegt/hlaupið í gegnum veggi/skotið leysigeisla úr augunum? Eða að kynlíf undir sæng sé góð hugmynd og að allir sem eiga skilið að njóta ástar eru í fullkomnu formi og með rosa falleg augu?

Ég er ekki að segja að við eigum að setja börnin okkar niður og láta þau horfa á Gaping Anal TeenVirgins 49
, ég er bara að biðja fólk um að hugsa og þroskast aðeins.
30. október 2007 klukkan 16:56
Valur
9 athugasemdir
07október

Aðalvopn nasistanna:

07. október 2007 klukkan 17:09
Valur
6 athugasemdir
27september

Nördablogg

Örn: Það er nú bara þetta félagsfræðipakk, kunna ekki neitt!
Kalli: Ég er nú sko á málabraut
Örn: Ja sko-
Valur: Jaaá, málabrautin er svona... δ yfir félagsfræðibrautinni.

Já, lesendur góðir, ég gerðist sekur um grófan og yfirgengilegan nördaskap kl. 9:52 að staðartíma þann 24. september. Ég er núna sannur X-ari.

Talandi um nördaskap þá vita mjög fáir að Shakespeare var mjög mikill nörd í eðli sínu, sérstaklega áður en hann fór út í leikritagerðina, en þá stundaði hann náttúrufræðinám af miklu lúðakappi. Eitt verkefna hans sker sérstaklega úr, en hér skal birta skýrsluna:

"My Lords and Ladies,
and little lads, far from Hades.
I shall tell you a tale,
traversing thought and time.

Hearken back to the year Hare,
hold thy disbelief and care,
for before us, the buffoons,
was bestowed a quest by the moons.

Our tools were taken out,
tracts and acids and flasks about.
We beheld them, bewaring all,
but we must answer the call.

Mixed the acids, did I,
but Aaron got some in his eye.
"Alas, my friend Aaron!" cried I,
"Ye musteth to the master fly!"

"No, friend William" whispered he,
"Wouldst thou that shame breaketh me?"
Thusly so was his fate sealed.
Searing pain as his skin peeled.

The master soon marked down
members present, with a frown,
he did the boy Aaron behold,
burned in face by acid two-fold.

He rinsed his eye rightfully,
repeatedly and not very carefully.
Little more did Aron deserve,
deigning to keep words in reserve.

Thusly did the throng depart
thereafter, as he tried to impart
Even more archaic knowledge,
aimed to make us cutting-edge.

But alas, as oft is the case
everything is not worth the chase.
Learn from this tale, toddlers all,
taken from the moonless call."


Hann var fljótlega rekinn fyrir að sýna aldrei útreikninga. Eða niðurstöður. Eða eiginlega nokkurt sem viðkom náttúrufræðina sjálfa.

27. september 2007 klukkan 21:12
Valur
5 athugasemdir
07september

Septimíusarblogg

Ekki eitt einasta blogg í ágúst. Ég hef svikið ykkur öll. Eða nei, bíddu, alveg rétt, mér er alveg sama um hvað ykkur finnst um bloggvenjur mínar. Eða reyndar geri ég það af því að ég vil fá fleiri skoðanir og líða eins og ég eigi vini.

En allavega, ég er að blogga núna.

Ætla ég að byrja á einu sem átti sér stað á bókasafninu í dag(alltaf villt sápudrama þar í gangi): Eins og sum ykkur hafa orðið vör við þá höfum við tekið í gagnið sjálfsafgreiðsluvélar sem gerir viðskiptavinum okkar kleift að afgreiða sig að mestu leyti sjálfir(geta tekið og skilað bókum og tímaritum, athugað stöðu og endurnýjað) og rembumst við starfsfólkið við að kenna fólki á þessar vélar og gengur það misvel(enda er Amtið uppáhalds hang-out pleisið fyrir sérvitringinga bæjarins). Í dag kom kona og starfsfélagi minn hún Ragna leiðbeinir henni að sjálfsafgreiðsluvélinni. Næsta sem ég heyrði var: "Þetta er allt of flókið fyrir öryrkja, ég kaupi bækurnar bara frekar"

...bíddu, bíddu, eru öryrkjar ekki bara heimskir heldur svo svínríkir að þeir eyða frekar þúsundum í bækur sem þeir geta fengið ókeypis með því að eyða örlitlum tíma í að læra á tækið? Ég hélt að umræðan í dag snérist um að öryrkjabætur væru svo lágar að fólk ætti varla fyrir matinn sinn? Ég bjóst nú við því að öryrkjar legðu sig sérstaklega fram við að eyða ekki bótunum í ónauðsynjar, enda eru þetta skattpeningar sem aðrir borga. Peningarnir spretta ekki upp úr engu.

Epílógus: Það er ekki nauðsyn að læra á vélarnar. Það er alveg leyfilegt að kjósa frekar handvirku aðferðina og hefði nú hún Ragna boðið konunni að lána henni gögnin þannig nema hvað að hún var búin að strunsa út úr húsinu áður en Ragna náði að jafna sig.


Hvað annað hefur gerst? Ójá, nú man ég af hverju ég hef svo lítið bloggað. Það er sumar og það gerist ekkert. Ja ok, Axel fór, meira um það hér. Annars... já... þúst... ég bjargaði Neverwinter frá ásókn Konungs Skuggana sem galdrariddari með sverðbrot í brjóstkassanum og ég hef byggt upp svo öflugt dvergavirki í Dwarf Fortress að samfélagið er að brotna undan því álagi að ganga frá öllum dauðu svartálfunum og tröllunum fyrir utan hliðin.

Og þið hélduð að ég gæti ekki orðið lúðalegri...

Ú, skólinn byrjar eftir... rétt rúma viku. Þá verð ég í þriðja bekk. Næsta sumar verð ég að undirbúa mig fyrir útskriftarferðina. Það er alveg afskaplega afbrigðileg tilhugsun. Þriðji bekkur. Einu stigi fyrir neðan elítuna...

Ég held samt að þetta blogg sé að verða allt of stefnulaust. Þess vegna ætla ég að bæta við uppáhaldstilvitnunni minni í augnablikinu:

"Þetta hef ég lært af heimspekinni; að ég geri af eigin frumkvæði það sem aðrir gera aðeins vegna ótta við lögin" - Aristóteles (ég þýddi af þessari síðu)

Ég er að bíða svo fast eftir því að hitta einhvern strangtrúaðan sem reynir að skjóta niður guðleysi mitt með "Án guðs má gera hvað sem er![Í þeim skilningi að án Guðs má drepa og nauðga eins og manni sýnist án þess að eiga hættu á refsingu eftir dauðann]". Þá er það annað hvort Ari eða þá skjóta til baka: "Með Guði má gera hvað sem er, í nafni Hans[og vísa þar með í þann langa lista af voðaverkum sem hafa verið framin í nafni hans].

En nei, ég er ekki á móti trúuðu fólki. Eða bíddu, jú ég er það. Ég er að nýta mér málfrelsi mitt til þess að mótmæla málfrelsi annarra, svona eins og múslimar.


Svona í lokin, þá rakst ég á skemmtilegt dæmi um það sem ég held að sé kallað á góðri íslensku selective reporting á íslenskri fréttasíðu, nefnilega Vísi. Berið saman eftirfarandi fréttir um það sem virðist vera sama hlutinn. Mbl.is og visir.is.

Án þess að fara út í umræður um ágæti þessarar rannsóknar, athugið hvernig Vísir fer að því að segja ekkert um peningagræðgi kvennanna í úrtakinu og einblínir á grunnhyggni karlmannana og mjúklega rennt inn að karlar séu hræsnarar og að konurnar hafa sitt "alveg á hreinu". Myndin sem er valin til að lýsa myndinni er alveg stórkostlega óaðlaðandi mynd í lélegum gæðum af risastórum sílíkontúttum á meðan mbl er með mun smekklegri mynd af einni af mest aðlaðandi konum í heiminum. Einhvern veginn finnst mér eins og samanburður á þessum fréttum segi margt um kyn og pólítískrar afstöðu þess sem skrifaði greinina fyrir visir.is.

Boðskapurinn? Sannleikurinn blekkir betur heldur en lygin og fréttasíður eru ekki áreiðanlegar heimildir.

Þetta blogg er farið að verða svolítið langt, en það er bara mér líkt. Ég enda blogginu á retórískri spurningu, sem ykkur er ekki skylt að svara þó svo að þið kommentið(á góðri íslensku):
          Er virkilega meira grunnhyggið að leitast eftir fegurð hjá maka heldur en gáfum, hæfileikum eða öðrum persónueiginleikum? Er ekki líkaminn og sá tími sem fer í að sjá um hann jafn mikill hluti af okkur og gáfur okkar og hæfileikar okkar og sá tími sem fer í að halda þeim uppi?

07. september 2007 klukkan 21:33
Valur
7 athugasemdir
10júlí

Krítarkort?

"Ég er nefapi í eyðimörkinni"

Ofangreind setning er algjört rugl og með engu móti skiljanleg með þeim upplýsingum sem þú, kæri lesandi, býrð yfir. En það er allt í lagi því ég áskil mér þann rétt að vera algjörlega út í hött; ég er undir engum kringumstæðum skyldugur til þess að "meika sens ". Ef þú verður einhvern veginn fyrir óþægindum vegna þessa... þá máttu vera reiður og kvarta, enda er enginn skyldugur til þess að vera rökréttur. Nema auðvitað að maður sé leiðtogi hernaðarlega voldugasta land heimsins.

Ha ha ha. Ég sagði brandara. Meira um þá hér.

"Vonleysið mun frelsa mig"

Talandi um ost, þá fór ég, eins og ég gaf sterklega í skyn í fyrra bloggi mínu, til Krítar um daginn. Ég er í raun nýkominn heim og voru foreldrar mínir ekki lengi að nota tækifærið og fara burt og skilja mig einan eftir heima með engan bíl og engan til að elda matinn... öh, já, og engann... þúst... foreldra til þess að öhhh, þúst... sýna manni væntumhyggju og... þannig... ... Ekki það að ég hafi nokkrar tilfinningar. Einu sinni fann ég fyrir tilfinningu... það var hræðilegt...

Vá, útúrdúr.
...
Vá, útúrdúr. Alveg yndislegt hvað þetta orð lítur skemmtilega út...
...
En aftur að KRÍTARFERÐINNI (lol)

Þann 17. júní fórum við fjölskyldan suður... til Reykjavíkur. Næsta dag vöknuðum við árla morguns og flugum til Bretlands ásamt fjölskyldu systur móður minnar. Í flugvél, það er að segja, ekki bara... þúst... ég meina, það væri bara silly...

Þegar við búin að þræða neðanjarðarlestarkerfi Lundúna og komin að kjarna þess(Victoria Station hét það ef mig minnir rétt. Það var allavega stórt, iðnvæðingslegt og fullt af dúfum) lagði bróðir minn hann Herra Haukur Sigurðarson til að labba niður Oxford Street og kynnast stórborgalífinu og versla eitthvað sniðugt. Þannig atvikaðist það að ég ákvað að slást í för með bróður mínum og kærustunni hans að labba niður(hluta af) þessa götu, algerlega án tillits við mildu innilokunarfælni mína og stórborgaróþægindi. Þetta var samt eitthvað sem ég vildi gera einhvern tímann á ævinni. Svona eins og að klippa neglurnar. Það er hvorki fallegt né skemmtilegt en maður bara verður...

Næsta dag var loks flogið(aftur, í flugvél) til Krítar. Við vorum með geðveikt hús .

Ég er á móti krónólógíu, þannig að ég skrifa eins og það dettur inn í hausinn á mér.

Einn daginn fórum við á ströndina. Og snorkluðum. Þetta var líka eini dagurinn sem ég sólbrenndist. Það gæti verið af því að ég var þreyttur og aðeins of vitlaus af sólskininu til þess að bera á mig sólarvörn eftir að hafa verið í sjónum. Og af því að það var falleg bikini-klædd stelpa beint fyrir framan mig að spila tennis og því gat ég ekki staðið upp að ná í kremið því þá mundi sj-

Einn daginn fórum við út að borða. Þetta reyndist vel þannig að við gerðum þetta nánast öll hin kvöldin og nokkur hádegi líka. Ég get fullyrt það að ég fékk besta kjúkling sem ég hef nokkurn tímann fengið og einnig besta spaghetti bolognaise í heiminum(bara spaghetti, svo hakk ofan á og mozzarella í skál til hliðar. Ekkert vesen, ekkert grænmeti. Af hverju er svona ekki algengara?).

Einn daginn fórum við að skoða höllina(DIE HALL!) í Knossos. Mér til vonbrigðar var hún því miður í rústi þegar við mættum en þó var margt sniðugt að sjá þar. Í sömu ferð sáum við fyrsta skýið síðan við höfðum lent á eyjunni. Þetta var á tíunda degi. Skýið var gegnsætt.

Einn daginn fórum við til Santorini(Nota bene: Santorini ekki San Torrini, eins og ég hélt lengi). Það var alveg svaðalega heitt. Enn einu sinni sannaði Guð bæði vald sitt og andúð sína á mér en ég rak hægri stórutánna í þröskuldinn inn í stóra rétttrúnaðarkirkju sem við vildum skoða... af því að þá vorum við í skugga. Ég hefndi mín á almættinu með því að missa plastflösku í gólfið, sem gaf frá sér mikinn hávaða. Það var sussað á mig og litið hornauga, sem er skondið af því að enginn var að tala. Þetta var einn af betri pörtum ferðalagsins, en ég get ekki lýst því nánar því engin orð geta fyllilega lýst hversu ótrúleg eyja þetta er. Skoðið myndir, þær eru ekkert. Ég keypti mér líka hjálm.

Einn daginn fórum við aftur á ströndina. Ég brenndi mig ekki en sá samt fallega stelpu í bikini í boltaleik.

Einn daginn fórum við svo heim. Eða þar um bil. Við þurftum að millilenda í Bretlandi alveg eins og á leiðinni út. Ég bjóst við því að ferðin heim mundi vera rosalegur léttir því ég fyllist sjúklegri heimþrá eftir tíu daga í útlöndum. En það er erfitt að finna tímapunkt þar sem hægt er að anda út og róast þegar ferðin heim lítur svona út:
  1. Vakna tiltölulega snemma til þess að yfirgefa húsið svo vinnufólkið getur gert það tilbúið fyrir næstu íbúa.
  2. Finna eitthvað að gera utan hússins þangað til að hægt er að tjékka sig inn í flugvélina klukkan 3.
  3. Drepa tímann í búðarrápi í Hania
  4. Mæta of snemma í flugstöðina svo að við þurfum að bíða þangað til að byrjað er að tjékka inn í okkar flugvél. Jæja, við verðum allavega fyrst í röðinni.
  5. Verða leiðbeint í vitlausa röð og síðan tilbaka þar sem við vorum áðan, nema núna erum við alls ekki fyrst. Langt frá því.
  6. Drepa tvær klukkustundir í Hania, sem er með fríhöfn á stærð við súper.
  7. Þriggja og hálfs tíma flug til Bretlands. Kvikmynd var sýnd. Ekkert heyrðist í henni.
  8. Öryggisgæslan í Bretlandi.
  9. Öryggisgæslan í Bretlandi.
  10. Redda okkur fari í White House Hotel, þar sem við gistum. Það er tíu mínútna ferð þangað. Klukkutíma seinna mætir farið okkar. Einn bíll sem tekur átta. Við vorum ellefu. Þannig að ég, Haukur og Sigurður faðir minn röltum aftur inn í bygginguna á meðan hin leggja af stað. Finnum leigabílstöðina, pöntum far, bíðum í þrjár mínútur og leggjum svo af stað og mætum örfáum sekúndum seinna er restin af liðinu. Hefðum nú átt að taka leigubíl frá upphafi.
  11. Gista á White House Hotel og þurfa svo að vakna klukkan hálf fimm til að fá far niður á rútustöðina.
  12. Við feðgarnir tökum aftur leigubíl á meðan restin notar courtesy coach hótelsins. Framundan er þriggja tíma ferð með rútu. Leigubílstjórinn segir okkur að hann hefur farið sömu leið á klukkutíma, og að leigubílstjórar taka mun minna pening fyrir ferðina heldur en rútan. Lærdómur: Ef þú ert í London, notaðu leigubíla.
  13. Þriggja tíma ferð með rútu.
  14. Öryggisgæslan í Bretlandi.
  15. Öryggisgæslan í Bretlandi.
  16. Bíða í fríhöfninni. Ég keypti mér bók(eða réttara sagt, fékk mömmu til að kaupa, því ég var aldrei með pening á mér). Ætlaði að drepa tímann í flugvélinni með því að lesa hana. Svo kom í ljós að ég var búinn að lesa hana.
  17. Tveggja tíma flug til Íslands.
  18. Heilsa upp á ættingja í Reykjavík. Ég fékk reyndar vöfflur, þannig að ég hresstist svakalega við.
  19. Fjögurra og hálfs tíma keyrsla til Akureyrar.
  20. Sofa.
  21. Vinna.

Og þá var Krítarferðinni lokið. Ég hefði nú getað notið hennar aðeins betur en ætli ég sé ekki bara allt of ferkantaður?

"Notar Guð bílbelti?"

Hann ætti að gera það...


"Ég gef þessari bloggfærslu 6 af 10 á Grétuskalanum"~ Gagnrýni Vals
10. júlí 2007 klukkan 22:56
Valur
6 athugasemdir
15júní

Síđasta bloggiđ...

...í bili. Ég er nefnilega að leggja af stað í ferðalag sem mun taka mig til Krítar á sunnudaginn. Því ákvað ég að blogga núna svo ég gleymi því ekki áður en ég fer og þá mun júnímánuður líða hjá án þess að eitt einasta blogg stingi hér upp kollinum.

Hvað er nýtt? Ó já, prófin. Ég náði stærðfræðinni. Þessir gráu tölustafir geta ekki tjáð hversu ótrúlega hamingjusamur ég varð þegar ég frétti það. Ég var fullviss um fall mitt. En ég náði. Ég fékk 5. Ekki einu sinni nían hans Arnar gat dregið mig niður úr hamingjuskýinu mínu. Ekkert gat stöðvað mig.

Á öðrum nótum þá halda tíurnar í ensku og frönsku áfram að sneiða hjá mér. Ég er viss um að raunverulegar einkunnirnar séu báðar 9.45. En INNA sýnir bara 9. Nú jæja. Ég fékk 6 í sögu, bjóst nú við betra, og 8 í íslensku og náttúrufræði. Og já, alveg rétt, 9 í íþróttum. Magnús Scheving má passa sig... ég gæti borðað hann...

Í öðrum fréttum er þetta helst að ég er á leiðinni til Krítar. Ég óska sjálfum mér ánægjulegrar ferðar og hef heitið þess að leggjast ekki í skammtímaþunglyndi eins og í síðustu sólarlandaferð, þar sem ég varð hálfsturlaður vegna rakans og hitans í Flórida og eyddi fjórum síðustu dögunum inni í bústaðnum að lesa Dune-bækurnar(frábærar bækur, en ótrúlega þungar og geta þannig valdið mildu þunglyndi. Ekki lesa ef þið þjáist af: Skyndilegum sjálfsmeiðingarhvötum, tímabundnu þunglyndi, grásýni eða hnémeiðslum). Í þetta skipti ætla ég að njóta ferðalagsins til hins ítrasta. Og hana nú!

Vissuð þið að 811 er flokkunartala ljóðasafna í Amtsbókasafninu? Af hverju veit ég þetta? Því ég vinn núna á bókasafninu!

...

Ég drep hér með þetta blogg áður en það fer að flokkast undir glæpi gegn mannkyninu. Æji, sjáið, ég setti brandara í kveðjuna mína. Og ég ætla að láta þetta rusl sitja hér uppi í þrjár vikur. Vel gert, Valur, vel gert.
15. júní 2007 klukkan 21:43
Valur
4 athugasemdir
31maí

Blogthings.com

In a Past Life...
You Were: A Mute Assassin.

Where You Lived: Australia.

How You Died: In Childbirth.
Who Were You In a Past Life?



Ég veit nú ekki alveg hvernig þetta gengur upp...
31. maí 2007 klukkan 15:30
Valur
1 athugasemd
22maí

Addi og Baddi

Baddi: "Hey, Addi, veistu hver er munurinn á homma og kokki?"

Addi: "Það er auðvitað margvíslegt sem ólíkt er á milli þessara tveggja fyrirbæra. Til að byrja með þá er augljóst að spurningin staðfestir kynhneigð hins fyrrnefnda manns en kynhneigð hins síðarnefnda er enn í óvissu. Þetta gildir einnig um kynferði persónanna tveggja; hommi er hugtak sem aðeins á við um samkynhneigða karlmenn en kokkur er orð sem er gjarnan notað yfir kvenmenn sem elda mat að atvinnu, enda er matreiðslukona afar óþjált. Þá má leiða hugann að því að kokkur er orð af germönskum uppruna en hommi er dregið af enska orðinu homosexual, sem er samsett úr orðunum homo, sem þýðir maður, og sexual eða sexuality, sem vísar í kynhneigð viðkomandi. Munurinn er einnig fólginn í viðhorf samfélagsins og hvernig hún hefur breyst í gegnum tíðina. Hommar hafa lengi þurft að þola mikla þjáningu vegna þröngra viðhorfa samfélagsins og jafnvel þurft að sæta ofsóknum vegna kynhneigðar sinnar. Þetta er að breytast með aukinni frjálshyggju og lýðræði. Kokkar hafa hins vegar verið viðurkenndur hluti samfélagsins um áraraðir, en lengi vel voru það aðallega konur sem sáu um matreiðslustörf. Þetta hefur verið að breytast undanfarin ár og margir karlmenn starfa sem kokkar í dag. Munurinn er einnig fólgin í hvernig ljóðskáld nota orðin í brag-"

Baddi: "Nei, veistu annars, gleymdu þessu bara..."
22. maí 2007 klukkan 18:51
Valur
3 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Ef öll ríki vćru sameinuđ í eitt alheimsveldi, hver ćtti ađ ráđa yfir ţví?